Í janúar árið 1992 fékk Þorgrímur Þráinsson rithöfundur símtal frá ókunnugri konu sem vildi segja honum sögu. Aðdragandi sögunnar var fremur stuttur en vakti áhuga Þorgríms ekki síst sökum þess að viðmælandi hans var kunn af skyggnihæfileikum sínum: ,,Mér birtist reglulega ung kona sem segist ekki öðlast frið í sálinni fyrr en einhver hefur sagt sögu hennar. Hún dó fyrir rúmum 200 árum!”


Allt hold er hey er saga þessarar löngu liðnu íslenskrar konu.


Þorgrímur hefur klætt sögu hennar holdi og blóði á eftirminnilegan hátt. Þegar hann hafði lokið við fyrsta uppkast bókarinnar, kom unga konan þeim skilaboðum til hans að hún væri komin í fallegan kjól úr bláum skýjum.


Allt hold er heyr er fyrsta skáldsaga Þorgríms Þráinssonar fyrir fullorðna en hann er margverðlaunaður höfundur barna- og unglingabóka.


Umsagnir

,,Höfundurinn miðlar skelfilegum örlögum á lævísan hátt. Kveikir spennu, veldur sorg og magnar reiði í einni svipan.”

                                                                                     Vigdís Grímsdóttir

Aðrar bækur

Andi ehf.   |   Tunguvegi 12   |   108 Reykjavík   |   Sími: 661 4000   |   Netfang: andi@andi.is