Ertu Guð, afi?
Ég vissi ekki að gamalt fólk gæti átt leyndarmál.
Ég hélt að bara krakkar ættu leyndarmál.
Pabbi sagði mér að afi Afríka ætti risaleyndarmál.
Ég gat ekki beðið eftir því að fá hann til Íslands.
Emma Soffía er ellefu ára, á pabba sem er alltaf úti á sjó og mömmu sem reynir reglulega við Íslandsmetið í fýlu. Hún hefur aldrei séð afa sinn fyrr en hann birtist á tröppunum með hundinn Tarzan og eftir það verður ekkert eins og áður. Afi tyggur matinn 77 sinnum (auðvitað – hann er nú einu sinni 77 ára), getur hætt að anda og svifið út úr líkamanum, er furðulega góður í fótbolta (miðað við aldur) og fyrr en varir eru allir í hverfinu farnir að tala um hann.
Ertu Guð, afi? er hlý og skemmtileg saga eftir Þorgrím Þráinsson sem um árabil hefur verið einn ástsælasti barnabókahöfundur þjóðarinnar. Hér leiðir hann lesendur sína á ný mið í fylgd heillandi persóna sem eru í senn djúpvitrar og gamansamar. Sagan var valin úr fjölda handrita sem bárust í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin 2010.
Aðrar bækur
Andi ehf. | Tunguvegi 12 | 108 Reykjavík | Sími: 661 4000 | Netfang: andi@andi.is