Að losna úr læðingi


Flestir hafa haldið aftur af sér árum, jafnvel áratugum saman. Hin ósýnilega ánauð grandar draumum okkar og hrekur markmið okkar á flótta. Hún fyllir okkur neikvæðni og hlekkjar okkur við meðalmennskuna. Hin ósýnlega ánauð er kölluð ÓTTI en það ógurlega skrímsli hefur traðkað á vonum okkar og draumum árum saman. Skrímslið hefur haldið fjölda fólks í gíslingu. Undiralda óttans eru áhyggjur og sektarkennd sem hafa lamað frumkvæði og sköpunarkraft okkar.


Í einhverjum tilvikum hefur óttinn og fylgifiskar hans stjórnað lífi okkar. Að lifa í ótta er ekki að lifa heldur að vera til. Óttinn sýgur úr okkur gleðina og hamingjuna. Hann skerðir gáfurnar, hlekkjar hæfileikana, hlær að draumsýn okkar.


Það sem hrekkur óttann á brott og færir okkur nær hamingju, gleði og fullnægju er MEÐVITUND. Hver var ástæða óttans sem hafði grasserað í okkur? Kannski var honum plantað ómeðvitað af þeim sem ólu okkur upp, elskuðu okkur mest. Samt töldu þau sig vera að gera sitt besta.


Eftir að hafa tamið sér fulla meðvitund er mikilvægt að kveikja á trúnni. Við verðum að trúa á okkur sjálf og gersemana innra með okkar sem bíða eftir að verða uppgötvaðar. Við búum yfir hæfileikum sem enginn annar í veröldinni býr yfir. Hvað gerist ef við kveikjum aldrei elda innra með okkur og nýtum ekki hæfileikana til fullnustu?  Við eigum að búast við því besta í lífinu. Það gerist þegar við leysum mikilfengleikann úr læðingi. Hann snýst ekki um peninga. Mikilfengleikinn er það að nýta okkar einstöku verðmæti, deila þeim og njóta þess að gefa. Auðsæld, gleði og hamingja munu leysast úr læðingi.


Við eigum glæsta, dásamlega framtíð sem tekur okkur opnum örmum. En dásemdin kemst ekki til okkar ef við óttumst og höfum reist háa múra af áhyggjum. Rísum upp og gerum kröfur til mikilfengleika okkar. Hann er engu líkur. Það sem við viljum, vill okkur. Fyrst þurfum við að verða það sem við óskum eftir. Þá fyrst verðum við óskin.


Fáir hafa lært að hrósa sjálfum sér, þykja vænt um sig, heiðra sjálfan sig og fagna sjálfum sér. Í dag er frábær dagur til að hefjast handa.


Þorgrímur Þráinsson

Andi ehf.   |   Tunguvegi 12   |   108 Reykjavík   |   Sími: 661 4000   |   Netfang: andi@andi.is