Hrósaðu núna


Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað. Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan bað hún nemendurna að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan 

nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til kennarans. Hann fór með þau heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Síðan fengu nemendurnir ummælin í hendur daginn eftir. Þegar þeir lásu blaðið urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir því að þeir skiptu svona miklu máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.


Lífið hélt áfram. Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og var kennarinn viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans. Hún kinkaði kolli. Þá sagði vinurinn að Magnús hefði talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna henni svolítið. Þeir höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn hafði fengið honum fyrir mörgum árum. 


,,Þakka þér fyrir að gera þetta. Eins og þú sérð skipti þetta hann miklu máli,” sagði móðir Magnúsar. Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af  því sem þeim þótti vænst um.

Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét. Hún bæði syrgði Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.


Flest hegðum við okkur eins og að við höfum gleymt því að lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur rennur upp. Þess vegna er mikilvægt að segja þeim sem okkur þykir vænt um hversu mikilvægir þeir eru og að þeir eigi sérstakan stað í hjarta okkar. Gerum það áður en það verður of seint.


Þú uppskerð eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum. Og þú skiptir miklu máli.

 

Þorgrímur Þráinsson

Andi ehf.   |   Tunguvegi 12   |   108 Reykjavík   |   Sími: 661 4000   |   Netfang: andi@andi.is